Jóhannes Birgir Jensson
Ávarp | Stefnumál | Æviágrip | Spurt og svarað

sjá spurt og svarað vegna nýjustu frétta

Framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins

Nú þegar vika er í landsfund Sjálfstæðisflokksins virðist sem enginn ætli að stíga fram og fara gegn sitjandi formanni sem ber mikla ábyrgð á þeim hamförum sem skekja allar íslenskar fjölskyldur, landið og miðin.

Orðstír Íslands er nú í molum erlendis, ákvarðanir sem formaðurinn kom að vega þar þungt, handvöldum mönnum voru látnir bankarnir í té fyrir lítið fé og því næst var almenningur gerður að ábyrgðarmanni þeirra einkaaðila sem fóru á lánafyllerí. Víxillinn er fallinn og bök Íslendinga eru nú við það að brotna.

Það að formaðurinn og aðrir forystumenn flokksins hafi ekki enn sýnt þann manndóm að viðurkenna mistök sín, hvað þá axlað ábyrgð, er skammarblettur á flokknum og hugsjónum hans.

Sú staðreynd að enginn hefur enn lýst yfir framboði gegn formanni og öðrum forystumönnum sýnir að þeir sem hafa unnið að því undanfarin ár að koma sér í framsveit flokksins telja að annað hvort hafi forystan í engu brugðist eða þá að þeirra eigin pólitíska framtíð sé mikilvægari en framtíð Íslands, þeir vilja ekki taka við þessu skelfilega búi sem við horfum á og skorast því undan þegar á reynir.

Formaðurinn var meðal þeirra sem völdu þá sem fengu Landsbankann, sem ber mesta sök á skuldaklafa bankaævintýrisins. Formaðurinn er æðsti yfirmaður Seðlabanka Íslands sem brást gjörsamlega og bregst þjóðinni enn með okurvöxtum sem ekkert gera nema að kyrkja heimilin og atvinnulífið. Formaðurinn, líkt og aðrir æðstu menn ríkisvaldsins, hunsaði ekki eingöngu ráð og aðvaranir íslenskra og erlendra sérfræðinga síðustu átta ár heldur gerði einnig grín að þeim og sagði þá loddara án þess að kynna sér staðreyndir.

Formaðurinn gaf einkafyrirtækjum óútfyllta tékka undirritaða af íslensku þjóðinni án þess að hún hefði óskað eftir því eða hreinlega vissi af því.

Það er ekki í anda sjálfstæðisstefnunnar að menn geti hagað sér án ábyrgðar. Aðilar í einkarekstri taka ábyrgð á eigin verkum. Hvort sem um er að ræða lítil eða stór fyrirtæki þá verða góðar viðskiptahættir að liggja á bakvið útrás þeirra, þau verða að vera lífvænleg og vel rekin. Bankarnir þurftu ekki að sýna gott viðskiptavit þar sem þeir stóðu með óútfyllta tékka, og þeir höguðu sér eftir því.

Flokkur einstaklingsfrelsisins stóð svo fyrir mestu hneisu síðustu ára þegar mannréttindi fjölmargra erlendra borgara lutu fyrir geðþótta kínverska alræðisins. Að taka við svörtum lista frá alræðisríki, og að fara svo eftir honum er þvílík skömm að þá þegar hefðu menn átt að segja af sér.

Eins og allir vita er mannauður Íslendinga mikill. Nú þegar hefur kvarnast úr honum og æ fleiri huga að því að flýja þjóðarskútu sem er að sökkva. Enginn vill verða skuldaþræll vegna óráðsíu stjórnvalda og nokkurra einkaaðila. Ef ekkert verður að gert mun þetta draga íslenskt efnahagslíf niður næstu áratugi, hugsanlega meira en skuldafenið sem stjórnvöld og bankar skilja eftir sig.

Ábyrgð og frelsi fylgjast að, og núverandi stjórn Sjálfstæðisflokksins hefur brugðist hvoru tveggja margsinnis.

Nú er breytinga þörf. Ekki er kominn fram leiðtogi úr forystusveitinni sem treystir sér til þess að bjarga því sem bjargað verður og til að marka stefnu áfram úr þessu hyldýpi ábyrgðarleysis og vanhæfni. Mér er því nauðugur einn kostur að ganga fram fyrir skjöldu og axla mína ábyrgð.

Ég gef kost á mér til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins, með það að markmiði að koma honum aftur á braut frelsis og ábyrgðar, mannréttinda og lýðræðis.

Kópavogi, 22. janúar 2009
Jóhannes Birgir Jensson


Ábyrgðarmaður: Jóhannes Birgir Jensson | Netfang: xd@betra.is